|
|
28.05.2008 09:27:12 / natthagagengid
Jæja gott fólk þó svo ég sé alveg fullkomlega búin að gera mér grein fyrir því að það sé enginn sem skoði þetta blogg lengur ætla ég mér samt að reyna smá...! Á laugardaginn 24.maí útskrifuðust við Eyrún sem og flest allir á 1, 2 og 3 ári....  þetta var frábær dagur gott veður og allir í góðu skapi. Útskriftin byrjaði á smá sýningum frá okkur á 1.ári og svo skeifukeppnin og svo endaði 3.ári með smá sýningu. Þetta heppnaðist allt mjög vel og eins og ég seigi þá var veðrið alveg frábært. Svo var brautskráningin og þar fengum við útskriftar skjölin í hendurnar og svo endaði þetta á voða fínni veilsu  Já svo núna er ég komin í bæinn og búin að hafa það ekkert smá gott, byrja að vinna aðeins í dag en fram að Landsmóti ætla ég bara að vera að vinna hjá pabba í smíðavinnunni stússast fyrir hann í Húsasmiðjuna, máli og svona allskyns skemmtilegt  Eyrún verður á Flugumýri að ríða út í allt sumar og svo verður bara tekið á því á Landsmóti!!! en já þetta er sennilega seinasta bloggið sem mun verða fyrir næsta haust þannig ég segi bara gleðilegt sumar öll sömul og við lofum að vera duglegri að blogga á 2.ári! Linda Rún biður að heilsa í bili....
»
18.05.2008 00:04:17 / natthagagengid
Jæja góðan daginn gott fólk ég hafði hugsað mér að reyna að halda smá lífi í þessari síðu og koma með eitt blogg! Jú jú það er búið að vera brjálað að gera í skólanum núna eftir páska, endalaus verkefna skil próf alltaf inná milli og allt í botni. Við erum núna búin með stóra verklega prófið sem fram fór á nemendahestunum okkar sem er ekkert smá gott. Svo núna eru það bara 3 bókleg próf og svo útskrift þann 24.maí. Jess það styttist svo hrikalega í þessa blessuðu útskrift að það er ekki venjulegt þá er bara 1.árið búið og við útskrifumst sem hestafræðingar og leiðbeinendur hversu töff er það  (það er að segja ef við náum bóklegu prófunum sem eftir eru hehe) Við Eyrún erum alveg komnar með nóg af þessu í bili það er búið að vera mikil törn núna og frábært að geta farið að koma sér heim og gera nákvæmlega það sem manni dettur í hug, fyrir utan það að núna tekur bara vinna við, en það er samt fínnt að breyta aðeins til. Núna eru allir með kúkinn í brókinni og brókina í kúknum að læra undir þessi 3 próf sem eftir eru, við erum reyndar búin að vera í fullt af prófum svona inná milli í áföngum sem við höfum verið að klára, en það er bara mjög gott því þá koma ekki öll bóklegu prófin yfir mann í einum rikk.... Svo er bara stefnan tekin á 2.árið hjá okkur Eyrúnu allavegana enn sem komið er. Svo var mót hérna á Hólum síðustu helgi sem gekk svona upp og ofan, Eyrún stóð sig glæsilega og endaði önnur bæði í tölt og fjórgang á gæðings hryssunni sinni Klöru frá Flugumýri, og Camilla okkar stóð efst þar í báðum greinunum á töffaranum Erni frá Grímshúsum, ég tók nú reyndar þátt bara í fjórgang en það tókst ekki eins vel hjá mér hehe smá óheppni sem kom upp í úrslitunum  en já þetta er svona meira og minna það sem hefur verið að gerast merkilegt uppá síðkastið. Nei nei ég er gleyma einu, en við 1.árs nemar tókum þátt í sýningunni ,,Tekið til kostanna'' sem er stórsýning haldin á Sauðárkrók árlega. Við vorum með munsturreið sem gekk bara alveg frábærlega vel hjá okkur, veit samt ekki alveg hvort við höfðum náð að toppa krakkanna í fyrra en... við vorum samt ágæt! Svo vorum við líka með smá hluta af þrautabrautarprófinu okkar og skoruðum á Magga Magg og Ingólf á Dýrfinnastöðum á móti Kareni og Verenu, og var það mikið stuð í þeirri keppni, Maggi Magg fór á kostum eins og vanarlega! Það var mikið stuð og drama sem kom út frá þeirri sýningu og mun lifa lengi í minningunni hehe! En svo er það planið fyrir sumarið það er auðvitað Landsmót við Eyrún stefnum á úrtöku og vonandi fer það allt vel hjá okkur og við náum að gera einhverja hluti á Landsmóti... en ef ekki þá verður þetta bara stór útihátíð og mikið fjör  Svo ætla ég að skella mér út á búgarðinn okkar út í Bandaríkjunum og vinna aðeins hjá brósa og það frábæra er að hún Tinna mín kemur með mér og verður hún þar í 3.mánuði og ég sennilega 2.mánuði! Eyrún litla ætlar að vera á Flugumýrinni og temja þar sína gæðinga. Svo þannig er nú það!!!! En áður en þetta verður OF leiðinlegt blogg þá ætla ég að fara að koma mér í rúmið og vakna eldsnemma til að læra undir fóðrun og hirðingu jess i'm loving it En Linda Rún lærdómspjalla biður að heilsa og segir til hamingju við alla þá fávita sem eru búnir í prófum og komnir í sumarfrí  heyrumst!
»
31.03.2008 11:41:01 / natthagagengid
Ég get svo svarið það...!! eigum við að ræða lélega bloggara eða, nei héllt ekki..... Lífið hér á Hólum gengur bara prýðilega og brjálað að gera. Það er eiginlega hreinn vibbi hvað það er ofboðslega stutt eftir af þessu ári, þann 25.maí útskrifumst við og þá verður sko stuð  En núna næsta laugard. 5. apríl verður árshátíð Hóla, já það er kominn pínu spenningur í liðið fyrir það en gallinn er bara sá að það er svo stórt verkefna skil á mánud. eftir það, vá það er glatað  en svona er þetta víst! Við sitjum núna í tíma sem heitir Hesthús og umhverfi og er kennarinn okkar babblandi um skjól út á haga fyrir hross, það er nú bara ágætlega áhugavert svo sem, en þar sem ég er ekki karlmaður þá get ég hlustað á kennarann og skrifað blogg  En á laugard. fórum við nokkur af fyrsta árinu út að borða á Ólafshús og svo var förinni heitið á Mælifell og spilað púl fram á rauða nótt  stemningin var í fyrirrúmi og mættum við Eyrún ofurhressar í gjafir kl. 8:00 morgunin eftir. En já eins og ég segi þá er bara mikið að gera núna verkefnin hrannast inn og dagskráin fremur þétt þar sem við erum byrjuð að æfa fyrir sýninguna ,,Tekið til kostana'' en þar mun Hólaskóli vera með 2 atriði en þar sem allt getur breyst ætla ég ekkert að segja neitt meira um það, þetta mun bara allt koma í ljós, en það eru æfingar byrjaðar núna á hverju kvöldi og allt að verða kreisí, vonandi verður atriðið okkar bara samþykkt inní þessa sýningu Svo erum við byrjuð í yfirferðaþjáfun með skólahrossin ekkert smá gaman!! þetta er bara auka áfangi sem mun ekki gilda til neinnar einkunna eða neitt, þannig þetta er í rauninni bara til að hafa gaman af!!! frábært alveg  En ég held það sé ekkert meira sem ég hef að segja ykkur frá... ég bið bara að heilsa ykkur í bili elskurnar og endilega kommentið aðeins á þetta blessaða blogg svo ég fari ekki að gráta Linda Rún kveður í bili....!!
»
07.02.2008 20:12:00 / Eyrún Ýr
Kæra fjölskylda, vinir, kunningjar og aðrir áhugamenn á þessu blessaða bloggi okkar, nú gerist það, Eyrún Ýr Pálsdóttir er farin að blogga.. Af okkur er allt gott að frétta og margt búið á daga okkar drifið síðan síðast.. Sandra litla og Tinna mín lögðu land undir fót um síðustu helgi og skelltu sér hingað norður til okkar og voru hjá okkur yfir helgina, mikið stuð, mikið gaman og mikið hlegið... Sandra fór gjörsamlega á kostum á föstudagskvöldið, gerði allt gjörsamlega vitlaust í firðinum og kleif svo fjöll þess á milli hérna í Hjaltadalnum og fólk á eftir henni vaðandi snjóinn upp að mitti. Alveg ótrúleg... (ÉG BARÐI HANA EKKI- ÉG BARÐI HANA EKKI- ÉG BARÐI HANA EKKI) haha snillingur.  Camilla og Sandra babykeiks
Laugardagurinn var svo tekin með þynku og tilheyrandi.. En vorum búnar að ná fullum afköstum upp úr miðnætti á laugardagskvöldið enda var það tekið með trompi.. Haldið var aftur á Barinn en enginn barinn þetta kvöldið. Mjög gaman þrátt fyrir glötuðustu tónlist allra tíma, helvítis sýru tónlist dauðans argandi allan tíman.. Held að maður þurfi að vera uppdópaður til að fýla svona tónlist, þvílíkt og annað eins.. Heyrðu og já reykvélin var biluð, ON takinn farstu inni og ekki hægt að sjá næsta mann fyrir reyk.. menn aðeins að missa sig! En já takk enn og aftur stelpur mínar fyrir frábæra helgi, bíðum spenntar eftir næstu heimsókn..  Tinnsa, Sandra og Linda
 Sykurpúðar ;o)
 Carmellan og Eyjan
Úrtaka fyrir meistaradeildinna var haldin 30. jan og skelltum við Camilla okkur.. Camilla með Óðinn og Oliver og ég með Gletting og Hreim litla.. Framistaða okkar gekk vonum framar og enduðum við í 3 og 4 sæti og þar með komnar inn í deildina..! Gaman að því en mikið framundar hjá okkur stöllum. Svo er stefnan tekin á Bautatölt 16. jan og ætlar Linda og Kveðja að skella sér þangað ásamt fleiri Hólanemum, aldrei að vita nema maður skelli sér líka.. þannig að það er mikið að gera í mótunum!  Ég og Hreimsi litli
 Camilla og Olli
Eyrún kveður í bili og skorar á Camilla Petru Sigurðardóttir að koma með næsta blogg Ps. fleiri myndir eru inn á myspace.com/eyrunyr
»
21.01.2008 19:40:56 / natthagagengid
Mikið hrikaleg, ofboðslega, innilega, brjálæðislega er þetta leiðinleg síða maður össs!!!! Er ekki í lagi, það nennir enginn að blogga lengur. En við skulum reyna að taka okkur á. En já skólinn er byrjaður á fullu og BRJÁLAÐ að gera, sem er æðislegt. Það er alveg hreint frábært að vera kominn með sinn hest, og ennþá skemmtilegra að vinna núna að einhverju ákveðnu markmiði. Það er mikið gaman mikið fjör á öllum hérna og á föstud. hittumst við öll á 1.ári, pöntuðum pizzu og höfðum gaman. Kvöldið heppnaðist ekkert smá vel og þeir sem sáu sér fært um að mæta held ég bara að hafi skemmt sér vel. Það var misjafnt hvað fólk var lengi að en einhverjir hálvitar vöktu til 7 og algjörlega misstu af gjöfum þann morguninn. En já við Nátthagapíurnar sem eftir stöndum höfum það bara mjög gott og hefur okkur tekist ótrúlega vel að komast af án hennar mömmu/Karenar Camilla stóð við sitt og hefur verið að elda villt og tryllst núna og einnig hefur Eyrún staðið sig vel í því starfi. Ég.... haaa ég, já sko ég legg diskana á borð, hnífapörin við hlið þeirra, glösin uppí hægra hornið, nema í það vinstra fyrir Eyrúnu því hún er fötluð greyið litla(örfhent), svo vaska ég upp, þurka stundum af borðunum og já.... ég held bara að það sé þá upptalið mitt hlutverk í eldhúsinu, hehehehh En nóg um það. Þó svo við séum komin með okkar hesta höldum við samt áfram með skólahestana, þannig núna erum við í tveimur verklegum tímum á dag sem er toppurinn á tilverunni þar vill maður helllst vera. Svo erum við byrjuð í nýjum áföngum þar á meðal kennslufræði, heilsufræði, hesthús og umhverfi, fóðrun og hirðing, og eitthvað fleira sem er ekki ennþá byrjað en kemur inn seinna á þessari önn. Þetta eru allt bara mjög skemmtilegir áfangar að mínu mati allavegana enn sem komið er En dagarnir hérna líða ekkert smá hratt núna þegar það er svona mikið að gera. Við byrjum núna í bóklegu fyrir hádegi og erum í verklegu eftir hádegi, það er alveg hrikalega erfitt... úfff það á að banna bóklega tíma svona snemma, maður sofnar bara en það vondandi bara venst!! Ég bið bara að heilsa í bili  Linda Rún kveður PS. það koma inn myndir fljótlega frá föstud. kvöldinu 
»
04.01.2008 17:30:55 / natthagagengid
Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og vandamenn og takk fyrir það gamla. Já það er bara vonandi að næsta ár verði eins gott og það sem var klárast, hugsið ykkur það er komið árið 2008!!! vá ég fer að verða gömull kelling össs... En skólinn hjá okkur hefst á ný þann 9. jan. og komum við Camilla allavegana norður sennilega þann 7. og janfvel Eyrún líka, ég veit ekki með hana mömmu (Kareni) en hún verður sennilega þarna á svipuðum tíma. Já það má segja að ég sé búin að hafa það alveg frábært í jólafríinu, búin að eyða slatta af peningum sem voru ekki til en það er bara eftirnafn mitt að eyða peningum skal ég segja ykkur!! Ég fékk fullt af fallegum jólagjöfum, át yfir mig af sælgæti og jólamat þannig núna kem ég tvíeld til baka af spiki og fýla það..En ég hef sorgarfréttir að færa, sko hún mamma ER AÐ FARA FLYTJA FRÁ OKKUR AAAAA HVAÐ GERUM VIÐ NÚ, hey hver á að elda, hver á að skamma okkur fyrir að ganga illa um, hver á að syngja vögguvísurnar á kvöldin, hver á að passa að við djömmum ekki of mikið, hver á að setja húsreglurnar, hver á að sjá um það að við lærum, úffff ég get endalaust talið upp, við 3 sem eftir erum eigum eftir að lenda í kúk og klessu, það verður aldrei eldað, allt verður skítugt og svo má áfram telja. En svona til að líta aðeins á björtu hliðina þá höfum við bara gott af þessu (svo erum við kanski ekki alveg svona slæmar). En þannig er nú mál með vexti að hún Karen kynntist einu sinni strák í einu landi á einum stað í einum bæ, og bara varð svona yfir sig ástfangin að hún ákvað að stinga okkur af og leigja FREKAR með honum á Hólum í einhverri íbúðarkytru og missa af öllu fjörinu í Nátthaga 19. Karen þú munnt sko sjá eftir þessu því skal ég nú lofa þér Hún Camilla tók það að sér í jólafríinu að læra að elda hjá henni móður sinni og ætlar því að taka við þeim störfum á heimilinu, dem það lýst mér nú mjög vel á. Hey Eyrún hvað tókst þú að þér að gera í jólafríinu? ég veit að ég tók að mér að borða og hafa það gott, þannig við erum bara frekar jafnar í þessum málum held ég hmmm? Já börnin góð ég hef nú ekkert mikið meira að segja þetta er líka bara komið nóg af bulli núna í bili! Við bara heyrumst síðar  Linda kveður með spik í hjarta 
ég held ég sé hætt að borða.. þessi er farin að líkjast mér of mikið ahahah 
»
24.12.2007 12:14:56 / natthagagengid
Við Nátthagapíurnar viljum óska öllum vinum og vandamönnum gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári.... Við þökkum allar ánægjustundirnar á liðnu ári og megi lífið brosa við ykkur, hittumst heil á nýju ári! Farið nú vel með ykkur, því ekki viljum við koma enn feitari til baka á Hóla.. össs Tóti yrði nú ekki ánægður með það (heyrirðu það Eyrún). En ég er farin að fá mér konfekt sjáumst!!!! Linda Rún Hólakúla  
Mikið hrikalega erum við Náttagellurnar sætar í svona jólabúningum, þetta fer okkur nú vel finnst mér  
»
16.12.2007 22:47:38 / natthagagengid
Jæja góðan og blessan daginn.... Við hérna í Nátthaga 19 erum að MEIGLa... þetta er án gríns ekkert djók lengur, íbúðin hjá okkur er gjörsamlega undirlögð, það er allt í lærdómsbókum, nammibréfum og úfff lyktin hérna inni er vibbi... svitalykt, heilasellulykt, hárfýla, andfýla, prumpulykt og bara já allur pakkinn. Þessi próf hérna eru alveg að fara með okkur!!!! Svo er það ekki til að bæta þetta að það sé hætt að birta til almennilega hérna á daginn, við vöknuðum í morgun og það er bara búið að vera dimmt síðan, get svo svarið það þetta er ekki til að bæta lærdómsþunglyndið. En já ég ætlaði bara að deila því aðeins með ykkur hinum þarna fyrir sunnan sem eruð búin í prófum og eru bara búin að vera full síðan, hvað við höfum það yndislegt í prófalestrinum. En sem betur fer klárast þetta á miðvikud. og vá þá verður skoooo gleði!!!! En elsku vinir ég hlakka ekkert smá til að hitta ykkur í jólafríinu mínu og njóta þess að vera með foreldrum mínum og hafa það kósí með þeim!!! Linda Rún biður að heilsa með prófaskítafýluna á eftir sér...!!! ps. Bættum inn nokkrum myndum hérna til hliðar... Sorry stelpur tók þessa mynd út.. gat ekki horft á þetta ógeð lengur..! Kv. Eyja bleyja, sveitt með táfýlu 
»
10.12.2007 21:30:20 / natthagagengid
Eigum við eitthvað að ræða þetta.... heheh góð setning!!! Já já ég veit við erum búnar að vera alveg viðbjóðslega latar við blogga. Það er samt ekkert mikið að frétta við erum bara hérna með prófaskýtafýluna á eftir okkur og lærum frá okkur allt vit. Vorum í okkar fyrsta prófi í dag og gengum við allar 4 ánægðar út úr því. Þetta var líffæra og lífeðlisfræði ekkert smá mikið efni að fara í og erfitt á köflum en þetta hófst allt. Þar síðustu helgi var jólahlaðborð Hólaskóla og var það mikið fjör. Ég, Gisli, Camilla og Þóra vorum með söngatriði ég og Gísli sungum saman og Camilla Petra spilaði snilldarlega á fiðluna sína og Þóra fór ljúfum tónum á skemmtaranum. Þetta tókst mjög vel hjá okkur og allir sáttir, sungum eitt jólalag. fólk skemmti sér misvel, sumir voru bara hressir og voru að allt kvöldið að og komu heim til sín kl. 10 um morgunin, aðrir fengu brókarsótt snemma um kvöldið og urðu því að þjóta, aðrir bara voru voða stilltir og fóru heim til sín að kúra, ég nefni engin nöfn í þetta skiptið en þeir taka þetta til sín sem eiga hehehe. En í þessum töluðum orðum er legið yfir bókunum erum að læra undir bóklegt járningapróf, og auðvitað rúllar Nátthagagengið því upp. Einnig er verklega prófið á morgun og er kominn smá fiðringur í mallakútinn yfir því. Við Karen skelltum okkur heim um helgina og vorum sveittar að læra undir próf, ég átti yndislega stund í sófanum heima með mömmu minni, greyið mútta tútta var að reyna að hlíða mér yfir allar spurningarnar og troða þessu inní heiladingulinn minn sem gekk með hlikkjum og skrikkjum... en mamma var frábær yfirhlíðari Svo er reiðprófið á fimmtud. og föstud. og svo klárum við prófin þann 19.des og erum í fríi til 9. jan fínnt frí bara. Það er kominn aðeins of mikill spenningur að komast heim í jólafri þetta er búin að vera ágætis törn í bili, mælirinn er orðinn fullur. Svo eftir áramót komum við með okkar hross hingað sem nemendahross, vá það verður svo gaman að fá að vinna núna með sitt eigið hross. En ég er hætt í bili ætla halda áfram að læra elskurnar. EN ég bið bara að heilsa ykkur og gangi ykkur öllum vel í prófunum sem eru þeim pakka þessa dagana. Linda Rún hófsinabein kveður. Hey Eyrún þessir eru alveg eins og við ótrúlegt maður
»
22.11.2007 12:24:57 / natthagagengid
Það er allt gott að frétta úr Nátthaganum.. síðustu kvöld hafa soldið farið í píningar. Fyrst voru það hendurnar á Eyrúnu sem voru vaxaðar, og engin smá hár og lopi þar á ferð, haha.. Eyrún er búin að vera að kvarta eftir þetta hvað henni sé alltaf kalt á höndunum.. en svo vöxuðum við hálsinn á mér, sem var frekar vont, hehehe hljómar ekkert vel en það eru víst nokkur hár þarna á barkakýlinu, ekkert alvarlegt, þetta er í ættinni Svo er það aðalpíningin, en hún var framkvæmd á henni Lindu Rún, en hún var sprautuð í rassinn!!! (getnaðarvörnin sprautan) En Karen sprautaði hana, og Linda var svoleiðis að drulla í sig úr hræðslu, og var búin að segja við Karen nokkuð oft: “Kaaaren, Kaaren, ekki hika” en hvað gerði Karen, hún hikaði og þurfti að stinga tvisvar, og það var alveg ágætismagn af efni sem hún sprautaði, og það tók svona smá stund, og Linda iðaði öll á meðan, svo þegar þessu var lokið tók Linda alskonar rassadansa, og þá vissi enginn að ég var að taka vidjó af þessu! En ég efast um að það eigi eftir að koma á netið, en þetta er virkilega gott vídjó.... Svo er komið að henni Karen, í kvöld ætlum við litli kiðlingarnir að pína hana mömmu okkar við erum svona nokkurnveginn búnar að ákveða hvað við ætlum að gera, vorum svona að spá í að taka hana í brasilískt vax, en það er svona einum of...
En hérna eru nokkrar myndir frá sprautuninni:
 
  Karen púki og Linda fórnarlamb
  Rétt áður en Linda fékk sprautuna í rassinn.

»
12.11.2007 19:59:20 / natthagagengid
Góðan og blessaðan daginn jæja þá er þessi elskulega uppskeruhátiíð búin og við Eyrún getum farið að slaka á.... heheh vá það var svo mikið að gera hjá okkur fyrir þessa uppskeruhátíð að það hálfa væri nóg maður, allt varð að vera fullkomið, Eyrún var búin að kaupa sér kjól fyrir löngu síðan EN nei allt í einu var hann ekki nógu góður svo hún keypti sér nýjan kjól!!! jebb námslánin að gera það gott hérna hjá okkur heheh ég var heppin og fann mér kjól fyrir löngu síðan en svo komst ég að því að helvítis skórnir voru ekki nógu góðir svo ég þurfti að stressa mig aðeins á því og redda nýjum, ég var svo heppin að hún Saga mín gat reddað mér. Fórum í nokkra ljósatíma og mamma bilaðist! og ég tala nú ekki um systur mína sem málaði okkur svo glæsilega, hún hatar ljós meira en allt!!!! er snyrtifræðingur og fynnst ljós vibbi! er búin að reyna að mála ansi margar ljósamellur en það er bara ekki hægt því öll málningin hleypur bara í kekki út af hita í húðinni. Fengum okkur neglur, tannbustuðum okkur uppúr matarsóda, borðuðum bómul í viku (til að grennast), fengum okkur sílikon í brjóstin, varastækkun, ég lét klippa af stóru tánni svo ég kæmist í drauma skónna, Eyrún litaði hárið svo það væri í stíl við kjólinn, og lét bæta aðeins í vinstri rasskinnina fannst hún eitthvað minni greyið..... á meðan sátu Karen og Camilla og spurðu okkur öðru hvoru að því hvort það væri ekki í lagi með okkur, salla rólegar yfir þessu. Jæja svo kom að þessu........ Karen og Camilla enduðu bara glæsilegri en við , Uppskeruhátíðin var ömurleg og við skemmtum okkur ekki nógu vel, Eyrún var með rassalykt og ég með meiglubletti eftir ljósin heheheheh nei nei ok ég skal hætta í neiðkvæðninni þetta var bara fínnt ball og við Eyrún fýluðum okkur bara ágætlega....!! vá Karen og Camilla voru ekkert lítið glæsilegar líka. Fyrir uppskeruhátíðina hittumst við nokkur heima hjá mér og hituðum upp, við vorum ekkert smá flott á því og fórum með Hummer limmunni á uppskeruhátíðina tókum klukkutíma rúnt áður, skáluðum með freyðivíni og stoppuðum á Esso og pissuðum, vá þá misstum við sko allt kúlið.. ..en það var ekkert smá mikið stuð á okkur. Við sem hittumst voru: Eyrún, Camilla, Viktoría, Valdimar, Freyja, Sandra Líf, Rósa Birna, Birkir, Grettir, Ég, Tinna Björg, Saga og Sigurgeir.Ég vil bara þakka ykkur fyrir gott kvöld heima og í Hummernum og þið voruð öll ekkert smá glæsileg. En já ég ég held ég hafi þetta bara ekkert mikið lengra núna og ég set inn myndirnar og kanski smá slúður við tækifæri... heheheh mohahah Þið sem ég hitti þarna um kvöldið takk fyrir síðast og vonandi skemmtu allir sér bara vel!!! Heyrumst Linda Rún ljósamella 
»
06.11.2007 16:01:27 / natthagagengid
JÆJA JÆJA JÆJA..... þá er þetta búið krufningin sjálf.... úffí púffi þegar við komum þarna inn lá meri bara ægilega dauð eitthvað greyið og beið eftir að láta krifja sig mmmm... Höskuldur kennari byrjaði á því að kryfja hausinn á henni sýndi okkur tennurnar og flr. Næst var farið í hálsinn og þar sýndi hann okkur barkann, vélindað, slagæðarnar, raddböndin, hnakkabandið og marg fleira. Vá þetta var svo spennandi maður. Það voru nokkrir þarna sem fengu ansi mikinn kökk í hálsinn og létu sig bara hverfa í snatri, aðrir píndu sig að vera þarna allan tímann og voru farnir að meigla í framan, aðrir fóru það langt að þeir kúguðust heheh það var pínu fyndið Næst fór Höski í framfótinn og reif hana frá skrokknum það var ansi klístrað. Næst var farið í afturfótinn, og svo í magann sem var allra verst þar hrundu út garnirnar, þarmarnir, botlanginn og ýmislegt fallegt fleira. Vá mig langði svoooo til að sprengja þetta allt saman og reyndu stöðugt að fá hann Höska til þess með engum árangri hann vildi meina að það yrði svo subbulegt allt því þá læki bara maturinn og skíturinn út um allt... sóóó sagði ég bara en því miður tókst þetta ekki....!!! kemur Linda Já þetta var alveg frábær tími og mjög lærdómsríkur. Svo sýndi hann okkur legið, og ýmis önnur líffæri. Svo sagði hann okkur að þetta hefi verið 1.v meri með 8.60 fyrir hæfileika og 8.90 fyrir byggingu, hún var bara ropari og þessvegna var henni slátrað.....neiiiiiiii kjánarnir ykkar þetta var bara einhver trunta maður sem var í fósturvísaflutningunum og það var síðan eitthvað vesen á henni í sambandi við það að halda. En ég ætla kanski að setja einhverjar myndir inn af þessu annars er ég ekki alveg viss um hvort það sé sniðugt því það er alls ekki fyrir alla mjög ógeðslegar myndir sumar!! Ég er með þær samt inní tölvunni minni þannig þeir sem hafa áhuga geta bara séð þær hjá mér heheh svaka spennandi maður OG í annað það styttist óðum í uppskeruhátíðina sjálfa og gríðarlegur spenningur kominn í okkur ofurbeiburnar hérna í nátthaganum, Eyrún ætlar að vera í hórukjólnum sínum, með klauf uppí boru, og svo ef hún dansar aðeins þá endar hún á túttulingunum össs hún er að fýla þennan kjól í tætlur maður ég ætla að vera í fitubollukjólnum mínum eins og mamma kýs að kalla hann en það er allt í lagi því það er það sem ég þarf á að halda Linda litla fitukúla ehheheheh!! mamma, þú bara hreinlega verður að sætta þig við það hehehh Camilla er komin með kjól reyndar erum við ekki búnar að sjá hann en hann er án efa klæsilegur, einnig er Karen búin að fynna sér einhvern glæsikjól sem við höfum ekki enn fengið að sjá heldur.... ég ætla bara að fara gróflega í helgina hún var ekki beinnt spennandi hjá okkur þvi við vorm á fullu að læra undir sögupróf sem var svo á mánud. og gekk það bara alveg ágætlega hjá okkur eða við vonum það allavegana en föstudagurinn var ansi skrautlegur hjá Camillu og Eyrúnu ahahahhaha ég get eiginlega bara ekki sagt meira komu heim seinnt og síðarmeir og já þetta var víst rosalegt kvöld hjá þeim stöllum á meðan var ég heima að hafa það kósi með honum Einsa mínum og vaknaði svo snemma og fór að læra... geggjað æ djöst love it Já ég hef nú ekki mikið meira að segja en ég er farin út á hestbak sjáumst Linda Rún kveður að sinni, svo vil ég fara að sjá einhver komment hérna þið þarna lúðalið þarna úti....!!! annars bara hættum við að blogga og förum í fýlu 
»
01.11.2007 21:07:14 / natthagagengid
Vússsss hvað það var kominn tími til að blogga aðeins á þessari blessaðri síðu okkar.... hressleikinn er í fyrirrúmi hérna í nátthaganum, mér fynnst eins og mánuðurnir hérna líði eins og fokking vika.... hvað er að gerast áður en ég veit af þá er bara allt í einu kominn 1.nóv...hjááálp Ég held við Karen séum að tapa okkur og fengum við þá flugu í hausinn í dag að skella okkur í kirkjukórinn hérna á Hólum ahahah það er bráðsniðugt!!! koma okkur aðeins í jólagírinn og svona, þau eru víst byrjuð að æfa jólalögin, hvorki meira né minna. Haldið þið að við verðum vígalega maður össss!!! við skellum svo myndum af okkur komnar í dressin, vestin, kirtlana og svona ú baby En ég hef nú rosalegar fréttir að færi börnin góð, sko þannig er nú mál með vexti að þegar við Karen, Camilla og Erla vorum á leið heim úr langa fríinu okkar á mánud. kvöldið lentum við í bilslysi jú ég get svo svarið það, sko við vorum að keyra á Holtavörðuheiðinni frekar hægt því við vorum með kerru með 2 hestum í og það var pínu hálka, og Camilla er að keyra og það er semsagt bíll búinn að vera í rassinum á okkur í dágóðan tíma og svo loksins ákveður hann að drulla sér fram og viti menn allt í einu kemur þessi gríðarlegi skellur á vinstri hliðina á bílnum og við sjáum bara þennan bíl skjótast út af veginn og á ágætri ferð.... bíllinn okkar skriðar vel til á veginum og það fyrsta sem maður hugsaði þá SHHHHIIIITTTT HROSSIN...!!! en Camilla snillingur náði að halda ró sinni og halda stírinu beinu og þar af leiðandi okkur einnig á veginum össss þarna mátti nú ekki miklu muna. Við Karen þjótum út úr bílnum og til fólksins sem var út af veginu og vá ég var með svo mikinn hnút í maganum því ég var svo viss um að það hefði eitthvað mikið komið fyrir þetta fólk. Nei viti menn mennirnir komu bara út úr bílnum vel hressir á því og ekkert meiddir ekki nema bara að annar maðurinn beit aðeins í tunguna á sér en það var nú ekkert alvarlegt bara sætur með smá rauðan varalit.... Við hringdum strax í lögregluna því bíllin sem var út af var ókeyrsluhæfur og okkar vel klestur bílstjóramegin og ekki hægt að opna dyrnar..... Þannig þetta tafði okkur um svona klt. og ekki vorum við snemma á ferli, vorum komnar á Hóla um svona 2 leitið... En sem beturfer var allt í lagi með alla og hrossin í lagi...!! Það fyndna við þetta var það að þegar við fáum bílinn í hliðina er ég í beinni við pabba labba, greyið ég auðvitað öskraði og bara aaaaaa ,,PABBI ÞAÐ VAR VERIÐ AÐ KEYRA Á OKKUR´´ aumingja pabbi alveg í shokki maður en ég róaði mig svo niður þegar ég áttaði mig á því að allt var í góðu Já vá þetta var sko afdrifaríkt kvöld Jæja ég hef nú ekki mikið meira svo sem að segja... við höfum það bara ótrúlega gott hérna á Hólum og söfnum bumbu. Sexy lady grrrrrrrrrrrr!!!!!! En ég bið að heilsa í bili börnin góð og gangið hægt um gleðinnar dyr. Linda kveður eldhress ps. ég vil bara minna á það að það styttist óðum í uppskeruhátíðina og krefst ég þess að allir séu farnir að hlakka jafn mikið til hennar og ég...!!!!!
»
25.10.2007 22:46:25 / Eyrún Ýr
Ákvað á henda inn nokkrum orðum hérna inn fyrst við erum að halda þessa síðu á annað borð! Margt á daga okkar drifið síðan síðast! Mikið búið að vera að gera þessa vikuna! Vikan byrjaði á stöðumati kl 8 á mánudagsmorgunin, þe.a.s við látin ríða brokk í hálfléttri ásetu, stígandi og lóðréttri eftir ákveðnum sporaslóðum og á baugum og þetta tekið upp! Svo var farið upp í skóla og horft á upptökurnar og við gagnrýnd.. hehe Ég slapp samt óvenjuvel, var allavega ekkert tekin í gegn.. Ótrúlegt hvað maður hefur gott af því að horfa á sjálfan sig! hversu asnaleg ég er og hvað ég þarf að laga og bæta mikið..! Svo eftir þetta tók bara lærdómur og aftur lærdómur við, því við vorum í (HELVÍTIS) erfðafræðiprófinu í gær, shitt hvað þetta er ekki mín sterkasta fag, held ég hafi samt náð, þótt það verði ekki mikið fyrir ofan 5una! Verð allavega sátt með það, þarf ekkert meira! S Jæja er að hugsa um að hafa það ekki lengra og fara að drífa mig í háttinn, því mín þarf að vakna snemma og koma systkynum mínum í skóla og leikskóla í fyrramáið, er heima í sveit því mínir ástkæru foreldrar eru að skoða erlenda grund og ég látin passa! Reyndar eru þau nú ekki þau einu sem nota mig sem barnapíu þessa daganna, því Kloddi og Máni eru hérna í pössun fyrir Lindu og Camillu því þær eru farnar suður í spillinguna! Æjá ég gleymdi víst að nefna það að það er langt frí hjá okkur þessa helgi, þ.e.a.s. erum í fríi á morgun og mánudaginn, mjög ljúft! Eyrúninn kveður að sinni, lifið heil og gangið hægt um gleðinar dyr
»
16.10.2007 21:39:29 / Eyrún Ýr
Shitturinn, það er allt gjörsamlega að verða vitlaust hérna í nátthaganum.. Klobbi litli er að gjöra þvílíka skandala hérna! Ævintýrið byrjaði þannig að Erla var kölluð hingað hérna niður til að klippa tenurnar í þessari elsku því hann gat ekki étið lengur vegna ofvaxtar í tönnum! Allt í góðu með það, en svo var Máni naggi sóttur og hans neglur klipptar og svo var þeim hleypt saman og var ætlunin að láta þá leika sér en Máni litli er svo hræddur við lífið að hann þorði ekki að hreyfa sig og Kloppi ákvað að láta sig hverfa og æddi inni í eitthvað op á eldhúsinnréttingunni.. hehe  Lindu leist nú ekki alveg nógu vel á þessa hugmynd hans og fékk eitt sykki móðursýkiskast, og þurfti að kalla til Steina til að rífa eldhúsinnréttingunna í sundur til að ná kvikindinnu út! Úff og núna situr Camilla og flokkar gott og slæmt gras ofan í Mána og Linda aftur búin að tína Klobba! Svona lið á nottal ekki að eiga dýr! hehe Karen er að meika það þessa stundina í Sims, hún er að búa okkur til! Voða gaman.. En jæja lengra verður það ekki í bili, ætla að skella nokkrum myndum inn frá síðasta fimmtudag! Farið varlega og munið að nýjar vörur geta verið gallaðar! hehe Camilla P.S. Klobbi fundin, hafði komið sér fyrir í skónum hennar Camillu! hehe 
»
Síður: 1 2
|
|